Velkominn á heimasíðuna okkar.....

Við heitum Ásgeir Þór, Viktoría Ýr og Elenborg Ýr

Við heitum Ásgeir Þór, Viktoría Ýr og Elenborg Ýr

Ásgeir Þór er fæddur 9 nóvember 2001og var 12 merkur og 52 cm og er því 8 ára, Viktoría Ýr er fædd 10 maí 2004 og var 12 merkur og 50 cm. og er því 5 ára pæja, litla prinsessan okkar er fædd 7 apríl 2009 og var 15 merkur og 51 cm.

Við eigum heima með mömmu og pabba í Grindavík en erum að sjálfsögðu Ísfirðingar í húð og hár. Mamma okkar heitir Helga Kristín Guðmundsdóttir (81”) og Pabbi heitir Elmar Jens Davíðsson (79”) .

Við erum Rosalega heppin og eigum marga góða að t.d Amma, afi og Þórir búa öll á Urðarveginum á Ísafirði. Sara býr með manninum sínum honum Þór og kisunum Ruslu og kisu á selfossi... Svo eru það auðvitað mæðgurnar í Garðarbænum Rakel og Jóna og erum við semsagt komin rosalega nálægt þeim núna sem okkur finnst nú ekki slæmt!

En svo eru það Amma og Gummi í Reykjavík,Grafarholltinu og Jenný systir hanns pabba býr í Reykjavík ásamt manninum sínum honum Sgga og líka Hrannar bróðir hans Pabba , svo eins og þið sjáið þá erum við Rosalega rík af fólki í kringum okkur.









hér kemur svo ein mynd af okkur öllum saman .....



þetta er hún Þórey okkar, altaf jafn falleg!
við söknum hennar rosalega mikið en eigum rosalega mikið af góðum minnungum um hana sem munu lifa með okkur alla æfi!







Hver er Mamma?

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.



Hver er Pabbi?

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
ENDILEGA MUNIÐ AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA OKKAR!!







Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því



Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann







Mamma mín...

4 ára: Mamma mín getur gert allt!
8 ára: Mamma mín veit mikið. Rosalega mikið!
12 ára: Mamma veit ekki alveg allt!
14 ára: Auðvitað veit mamma það ekki heldur!
16 ára: Mamma? Hún er alveg hrikalega gamaldags!
18 ára: Sú gamla? Hún er alveg út úr kortinu!
25 ára: Ojæja, það gæti verið að hún vissi eitthvað um það!
35 ára: Áður en við ákveðum það skulum við bera það undir mömmu.
45 ára: Hvað ætli mömmu hefði fundist um það?
65 ára: Ég vildi óska þess að ég gæti rætt um það við mömmu ...







Camilla Mist frænka okkar

Jóna Lára sæta frænka okkar

Palli Litli

Sigríður Emma og Kristjana Marín vinkonur okkar

Mikael Elí

Alba líf frænka okkar


Gunnar Helgi

Arnar vinur okkar

Diljá Ögn og Ísar Smári

Elísabet

Dagnýjar og ómars drengur

Sigrrós Ingimarsdóttir frænka


Lóa Rakel og Snorri

Elinbet Líf

Þorsteinn Ólafur